Jæja loksins kemur eitt blogg!!
Eitt blogg í boði 2. sunnudags í aðventu, það loga samt engin kerti hjá mér núna þar sem aðventukransinn og kveikjarinn eru einhvestaðar ofan í kassa.
Ég er flutt í nýja íbúð sem er mjög kósý og örlítið stærri en sú á görðunum. Hún á reyndar eftir að verða enn meira kósý þegar ég er búin að taka upp úr öllum kössunum og taka allt sem er úti á miðju gólfinu og raða öllu þar sem það á að vera
Það er að verða vika síðan ég flutti inn og hef enn ekki haft tíma til að taka upp úr kössum og ferðatöskum.
ég er búin að vera að vinna svo svaka mikið að ég hef varla gefið mér tíma í neitt annað.
Kringlan er aðeins byrjuð að vera opin til kl 10 á kvöldin og þá fer ég beint eftir vinnu í leikskólanum upp í kringlu að vinna í duka sem er reyndar mjög fínt. Held samt að ég hafi tekið lengsta vinnudag minn á ævinni á föstudaginn þar sem ég mætti í allar 3 vinnurnar mínar! jebb ég var að vinna í svona 17 tíma!! þó ég segji sjálf frá þá tel ég það vera mjög mikinn dugnað enda var ég gjörsamlega búin á því þar sem ég hafði verið að vinna 13 tíma daginn áður og vá hvað eg sofnaði fljótt þegar ég kom heim!
Föstudaginn fyrir viku var svo jólagleði í leikskólanum og var þar svaka stuð. þar var uppljóstrað hverjir voru leynivinir hvers og pakkar og ótrúlega góður kalkúnn, fylling og sósa namm! skelltum okkur smávegis í bæinn en ég entist ekki lengi þar sem ég þurfti að vakna snemma til að fara í vinnu morgun eftir.
Miðvikudaginn síðasta fór ég svo út að borða með duka. á mjög flottan stað sem heitir La Primavera og vá hvað það var góður matur.
í forrétt var hráskinka , geitaostur og brauð
í aðalrétt var hreyndýrakjöt, grænmeti og kartöflur
í eftirrétt var blaut súkkulaðikaka með ís og jarðaberjum.
Alveg hreint magnað!
Í gær fór ég svo út að borða á Caruso og í Þjóðleikhúsið að sjá Pabbinn með Emmu, Hauk og Soffíu.
Caruso er snilldar staður á sko pottþétt eftir að fara þangað aftur. Fékk mér Enrico sem er hálfmáni með kjúkling, pepperoni, hvítlaukssósu og smá grænu inni í allveg hrikalega gott. Við vorum svo södd að þjónarnir hlógu eiginlega að okkur og svo rúlluðum við af stað í þjóðleikhús á eina fyndnustu sýningu sem ég hef séð!
Held að sýningin hafi bæði hrætt og kætt þá ófáu verðandi foreldra sem voru í salnum hehe. En þar sem ég vinn á yngstu deild leikskóla skildi ég stundum svo ótrúlega vel hvað hann var að meina. Vá hvað þetta var fyndið! 
Eftir leikhúsið skelltum við okkur svo út í Vesturbæjarísbúð og nældum okkur í smá eftirrétt 
Fyrir löngu síðan skellti ég mér norður í örstutt stopp til að sjá litla kútinn þeirra Sunnu og Hákoni. Jee minn hvað hann er mikil rúsína. Enn og aftur Innilega til hamingju með prinsinn sem á að fá nafn um næstu helgi
)
Get hreynlega ekki beðið eftir að komast norður í jólafrí og hitta fólkið fyrir norðan!
Löngu búin að kaupa allar jólagjafir nema 2 eða 3.
Það er dálítið skemmtilegt að segja frá því hvað krúttin mín á leikskólanum geta verið stríðin. Ein lítil snót hélt því alltaf fram að ég héti Solla og þegar ég var að leiðrétta hana sagði hún alltaf skælbrosandi neeeeiii SOLLA.
Svo eitt skipti þegar ég var að svæfa hana hélt ég að ég myndi springa út hlátri, hún var allveg að sofna svo heyrist í henni ohhh Solla mín og tekur utan um mig.
Jæja nú er ég búin að eyða öllum tímanum sem ég ætlaði að nota í að taka upp úr einhverjum kössum og töskum í að liggja í leti og skrifa bloggfærslu. hehehe flott Elfa.
Komin tími að láta þetta gott heita og fríska aðeins á sér fésið fyrir vinnuna 
Gleðilegan 2. í aðventu og passið ykkur nú að týna ekki sjálfum ykkur í jóla og prófastressinu 
.jpg)
Later
- Solla 